laugardagur, apríl 02, 2005

Markaðssetning

Eins og mörg ykkar vita að þá er ég að læra markaðsfræði... ég er oft beðin um útskýringu á hvað "markaðssetning" er
Jæja hér kemur útskýringin:

*Þú ert kona og sérð flottann mann í partýi. Þú ferð upp að honum og segir, "Ég er frábær í rúminu."
Þetta er bein markaðssetning.

*Þú ert í partíi með fullt af vinum og sérð flottann mann. Einn af vinum þínum fer upp að honum, bendir á þig og segir,
"hún er frábær í rúminu."
Þetta er auglýsing.

*Þú ert í partýi og sérð flottann mann. Þú labbar upp að honum, færð símanúmerið hans, hringir í hann daginn eftir og segir,
"Hæ, ég er frábær í rúminu."
Þetta er símamarkaðsetning.

*Þú ert í partýi og sérð flottann mann, þú lagar til fötin þín, labbar upp að honum og réttir honum glasið þitt og segir við hann,
"Fyrirgefðu, má ég ?"
Lagar bindið hans, nuddar brjóstunum létt utan í hann og segir,
"Ó, á meðan ég man, ég er frábær í rúminu."
Þetta eru almannatengsl.

*Þú ert í partýi og sérð flottann mann. Hann labbar upp að þér og segir,
"Ég hef heyrt að þú sért frábær í rúminu."
Þetta er þekkt vörumerki.

*Þú ert í partýi og sérð flottann mann. Hann langar í þig en þú færð hann til að fara heim með vinkonu þinni.
Þetta er söluorðspor.
*Vinkona þín getur ekki fullnægt honum, svo hann hringir í þig.
Þetta er tækniaðstoð.

*Þú ert á leið í partý þegar þú uppgötvar að það gætu verið flottir menn í öllum þessum húsum sem þú ert að labba framhjá. Svo þú klifrar uppá þakið á einu af þessum húsum, sirka í miðjunni og öskrar úr þér lungun,
"Ég er frábær í rúminu."
Þetta er ruslpóstur.

Þetta er svona beysiklý það sem ég er að læra ;o)

Engin ummæli: