fimmtudagur, maí 27, 2004

Það er sko ekkert að gera í vinnunni núna, af hverju getur fólk ekki verið að trufla mig í dag í vinnunni, fólk vill alltaf vera að trufla mig þegar það er mikið að gera en ekki þegar það er ekkert :o(
Hún Silla litla var e-ð að misskilja síðast blogg hjá mér, ég er ekki að kveðja neinn, ég er bara að fara yfir helgina til Finnlands með Boccianu, það er norðulandamót ó baoccia, og það vantaði eina manneskju með í ferðina og ég var beðin ;o) That´s all

Sko

Ég get líka breyt um lit á hverjum degi Fernulíus!!!
Ég fór á Pixis tónleikana í gær, það var alveg ágæt ég bjóst reyndar við meiru, þeir hefðu mátt taka fleiri lög sem maður þekkir og svo spiluðu þeir svo stutt en þetta var samt fínt, en mikið rosalega er söngvarinn feitur!!!!!! :o)
Ég er búin að vera rosalega bissý síðastliðnu daga að það hálfa væri nóg, hef bara ekki tíma til að tala við hana Fernulíu, held hún sé soldið sár út í mig :o/
Svo í kvöld þarf ég að pakka fyrir Finnlandsferðina og fara í kveðjupartý og fara í kynningu ÚFF!!!!!
En jæja ég ætla að fara að halda áfram að vinna skrifa seinna e-ð af viti eða ekki

þriðjudagur, maí 18, 2004

Jæja þá er þessum ósköpum lokið

Þá eru prófin búin og maður byrjuð að vinna, maður skildi ætla að manni þætti ekki eins erfitt að vakna til að mæta 9 eins og 8, en nei ég er hreint að drepast á morgnana.

Ég hef verið dugleg núna fyrstu 2 morgnana síðan ég byrjaði að vinna, ég fer nefnó hjólandi, og svo hjóla ég líka aftur heim, það er ekkert mál reyndar að hjóla í vinnuna ég renn bara niður brekku og þá er ég komin, reyni ekkert á mig ;o) En svo að komast heim!!!! það er allt annað þá er allt upp í móti, ég hélt ég myndi drepast á leiðinni heim í gær, en ég lifði og komst hjólandi heim. HETJA!!! Alla vega þá finnst mér það.

föstudagur, maí 07, 2004

Mikil Sorg

Maður hefur ekki verið dugleg að blogga þessa dagana enda ekki verið neitt sérlega ánægulegir dagar hjá mér. Þannig er það að litla ljósið mitt, hann Ringo minn, er farinn hann var svæfður hinum langa svefni á mánudagskvölið 3.maí, hann var orðinn svo veikur að hann gat ekki gert neitt né haldi fæðu niðri hann ældi öllu sem reynt var að koma ofan í hann, og það var ekkert fyrir hann hægt að gera :o( Þetta er mikill missir fyrir mig, hann var minn, þetta er eins og að missa fjölskyldumeðlim enda var hann hluti af fjölskyldunni, hann var litla barnið mitt.

Nýrun í honum voru bara alveg hætt að starfa. Af hverju er þetta alltaf svona, þarf náttúrulega að gerast á versta tíma, í prófunum, nú get ég ekkert lært því ég hugsa bara um greyið mitt litla, núna þegar hann er ekki til að trufla mig meðan ég er að reyna að læra þá er hann samt að því, ég vildi náttúrulega mikið frekar vilja hafa hann hér að klóra í mig til að reyna að fá athygli mína á sig. Hann þurfti alltaf að vera með alla athygglina, held ég hafi bara aldrei kynnst eins athyglisjúkum hundi.
Þegar maður var að koma heim eða bara hann var í stuði þá hoppaði hann heil-hring af gleði, hring snérist. Honum þótti líka mjög gaman að stela sokkum, hann kom inn í herbergi til mann og tók sokk í munninn og beið svo eftir því að maður tæki eftir honum og þá rauk hann af stað til að fá mann til að elta sig. Svo líka þegar maður var að fara að sofa þá fór hann upp í rúm og sat þar að bíða eftir mér, og ef ég var kannski of lengi inn á baðherbergi þá kom hann að krafsa í hurðinna, gat sko ekki farið að sofa einn :o) Hann vildi líka alltaf vera undir sæng, og jafnvel með hausinn á koddanum, ég held að hann hafi ekki vitað að hann var hundur. Ég get bara ekki lýst því hér á blogginu eða þá bara yfir höfuð hvað þetta var skemmtilegur hundur og svo var hann líka alveg rosalega fallegur, þið sem þekktuð hann vitið hvað ég er að tala um.
Hann var jarðaður á miðvukudaginn 5.maí með tveimur sínum uppáhald böngsum í kistu með sæng og kodda.

Svo ofan á þetta þá veikist amma mín, hún er komin á spítala og er mjög veik, en það er ekki lífhættulegt, hún er bara svo gömul þannig að það er meira mál ef hún verður veik.

En af hverju þarf þetta alltaf að vera svona allt á sama tíma, ég verð bara heppin ef ég næ prófunum núna.