miðvikudagur, ágúst 18, 2004

BARCA CALLING!!! eða KÖBEN CALLING!!!

MIG LANGAR ÚT!!!!, ég er ekki að meika þetta land mig langar út í skóla NÚNA!! ASAP!!!! Það er svo mikið rólegra líf úti í Barcelona og líka Köben, maður verður að fara út í skóla, ég tel mann hafa mikið miera upp úr því heldur en að læra allt hér, plús það é er að læa Alþjóða... og það er mikið betra að læra hluta af því þá e-r annarstaðar en bara hér.

Það var hitt hana Ernu í gær þar sem greyið stúlkukindin var farin að sakna mín svo óhemju mikið að ég varð að veita henni smá tíma ;o) Við rúntuðum um allan bæ og fengum okkur ís. Í kvöld ætlum við svo á Vegamót að fá okkur nachos og hvítvín í stað kvöldmats, því við erum báðar komnar i mega átak, við erum orðnar eins og rúllupylsur.
Svo er þessi mega helgi framundan, við ætlum að hafa stelpudjamm og þarnæstu helgi þá verður slomberpartí(náttfatapartý) hjá okkur Ernu, ætlum í að taka alla helgina í það. Og þar sem Erna á ekki svona fjarstýrt rúm með nuddi svo ég geti vakið hana þegar ég verð LÖNGU vöknuð þá verð ég í þetta skipti að taka með mér gúmmíhanska til hennar og svo finna dótakassan hennar og kveikja á öllu tækjum og tólum og kasta í hana í rúminu svo hún vakni ;o)

þriðjudagur, ágúst 17, 2004

Einfaldar í denn

Það er enn ekkert að gerast hjá mér, það eina sem ég get hugsað um þessa dagana er það að ég er að fara út í nóvember, rétt fyrir próf... en það reddast.
Helgin var róleg eins og helgin þar á undan, ég og Arna fórum til Lísu æskuvinkonu og var þar verið að rifja upp hverslu einfaldar við vorum í denn, sko ég og Lísa vorum samlokur frá 3 ára aldri þannað til ég flutti og fór í annan skóla um 12 ára.
En já ein sagan um hve einfaldar við vorum ;o) Einu sinni þá komum við heim til mín eftir skóla með miða frá kennaranum sem á stóð að það væri njálgur að ganga eða e-ð svoleiðis og ég og Lísa vorum náttúrulega nokkuð forvitnar að vita hvað það var og fórum að spyrja mömmu mína og pabba útúr hvað það væri, okkur fannst þetta náttúrulega ógeðslegt þegar við fengum skíringuna á því og við vildum fyrir alla muni vita hvernig átti að losna við svona viðbjóð ;o) Þá sagði sennilega pabbi minn okkur það að maður yrði að fara út í sjoppu og kaupa franskar kartöflur og svo átti maður að dingla frönskum fyrir framan rassinn og þá myndi njálgurinn hoppa út því þeim þætti franskar svo góðar ;o) hehe og ég og Lísa urðum ein stór augu og trúðum þessu náttúrulega alveg, en þar sem við vorum ekki með njálg að þá þurftum við ekki að gera þetta, ég segi nú bara til allrar hamingju það hefði nú verið laglegt ef við hefðum farið að dingla frönskum við rassgatið á okkur hehe.
En já þetta var föstudagur, næst er það laugardagur.
Á laugardagsmorgun vaknaði ég snemma við hringingu frá Örnu. Við ákváðum að fara verstur, hún að hitta manninn sinn en ég að fara bara til mö og pa í berjamó. Við vorum lagðar af stað fyrir hádegi, við ákvaðum að fara hægt og vera ekkert að flyta okkur, við fórum Hvalfjörðinn en stoppuðum reyndar ekkert þar, en við stoppum rétt áður en við komum í Borganes og nutum ásta......NEI!!! nutum sólarinnar eftir svona 30-40 mín stopp fórum við aftur af stað og stoppuðum svo í Borgó og keyptum okkur nesti. Næsta stopp var svo við Vegamót þar sem maðurinn hennar Örnu ætlaði að sækja hana. Við stoppuðum við læk og það var svo heitt að ég og Lukkan mín fórum að vaða í honum, lækurinn var ekki einu sinni kaldur, hann var bara svona stofuheitur, en jæja við Arna áttum að hafa góðan tíma þarna en nei maðurinn hennar ekur eins og svín og náðu að vera 20 mín með 30 -40 mín veg. Svo héldum við áfram áur sepret weys!!
Ég fór íberjamó í stuttbuxum og bol, sem ég held ég hafi nú bara aldrei gert.
En já svona var helgin mín. Ég lent svo í þessari rosa runu á leið í bæinn, bíll við bíl frá næst síðaðasta hringtorginu í mosó, hélt ég myndi tapa mér þarna en svo var ekki.

miðvikudagur, ágúst 11, 2004

Permó!!!

Ég veit ég veit ég hef ekki verið neitt rosalega dugleg að blogga upp á síðkastið enda haft nóg að gera, það er mikið að gera hjá mér í vinnunni, nema núna í augnablikinu því faxið er bilað.
Það er mest lítið að gerast hjá mér, ég er búin að bóka ferð til Boston 13.nóv og verð í 3 nætur, við Hildur ákváðum að skella okkur í svona skoðunar/verslunar/skemmtunar/stelpuferð, mig er bara strax farið að hlakka alveg rosalega til, búin að skoða allt á netinu sem sagt er vera áhuga verðir staðir, hehe ég verð bara búin að sjá þetta allt áður en ég kem ;o) Því það eru svona webcam út um alla borgina, ég ætti kannski bara að afpanta ;o)
Já ég er ný komin úr klippingu og permó, er komin með frekar stutt hár, það er svona rétt fyrir neðan axlir og svo svona systratopp, þ.e.a.s. eins og systurnar í Jakaseli ;o) BH ogHH. En já svo þetta permanet, ég ákvað að fá mér permanet því ég er með svo rosalega SLÉTT hár, það þýðir ekkert að gera við það því það lekur allt úr því og permó á að gera hárið líka meðfærilegra, en jæja mín fékk sér permó og var alveg rosalega fín fyrsta daginn en svo varð það bara SLÉTT aftur, ég er með vonlaust hár!!!! Jónína hárgreiðslukonan mín var búin að vara mig reyndar við þessu, hún sagði að ég væri með svo slétt, stíft og þykkt mikið hár að ég mætti alveg eiga von á því að það yrði bara slétt vegna þyngsla.
En já þetta er það nýjasta að frétta af mér. Ég lofa að þegar skólinn byrjar verð ég duglegri að blogga því þá hef ég ekkert betra að gera í tíma ;o)