föstudagur, nóvember 21, 2003

GEGT DÚLLEG

DJöfull er ég búin að vera dúlleg þess vikuna, bara búin að mæta á réttum tíma í skólan og tala nú ekki um hvað ég er líka búin að vera dúlleg að læra, og þá sérstaklega í gær!! Við Fernulíus sátum í gær frá 12-12 að gera verkefni DAUÐANS í fagi sem heitir Fjármál fyrirtækja, eins og sést á nafninu þá er það ekki neitt ROSSA skemmtilegt, en samt það er svona fyrir mig, svona reikna, nei það er ekkert ROSSA leiðinlegt það er bara svaðaleg handavinna.
Ma´r bara kláraði fjármálaverkefnið og ætlar bara að láta djúsí KK hafa það, er maður soldið góður við þá, kannski soldið mikið, kannski soldið of mikið?????
Nei við erum svo góar við þá, þeir verða nú að geta leikið sér um helgina í staðinn f. að þurfa að liggja yfir þessum andskota, þá getið þeir legið yfir eða bara undir e-u öðru/öðrum, svo náttúrulega þarf ekki alltaf að liggja ;o) Æ þeir eru orðnir svo svangir greyin svo hvað gerir maður ekki fyrir þessa djúsí-gæja ;o)
En vellvell best að fara að fylgjast með í tíma :o/

miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Vjesen

Jæja ma´r búin að ver gegt dúlleg að mæta á réttum tíma í skólan með nesti fyrir allan daginn, fæ stæði strax og allez, allt búið að ganga eins og í sögu.............En nei!!!
Í morgun bruna ég í skólan legg bílnum,,, sé þá að hann Bimmi er að renna í hlaðið á sama tíma og ég. Við hoppum úr bílunum okkar tökum töskurnar og ég nestið mitt að auki og löbbum svo af stað upp að skólanum. Við náttúrulega tölum heilmikið, svo rífur ma´r upp hurðina á skólanum og er kominn inn fyrir......þá er mér litið niður og ég sé, mér til mikillar gremju að ég var ÖLL út í jógúrti :o( Þá hafði helvítis jógúrtið sprungið og búið að leka niður mig alla, á úlpuna mína á buxurnar mínar!!! Þetta minnti soldið á brund sem hefði sprautast á allar buxurnar mínar, því þetta var svo ofarlega á buxunum :o/
En jæja ég fór náttlega beint á klósstið til að reyna að þrýbba mig, kom svo svona sæmilega sátt inn í stofu(hélt sko að ég væri sæmilega hrein) og sat þar út tíman að tala við strákan á msn-inu.. eeee nei meina sko LÆRA :o/
Svo ætlaði ma´r að fara labba um ganga skólans en nei ma´r er allur í jógúrti og stinkar feitt af jarðaberja jógúrti og enginn vill vera nálægt mér :o(

þriðjudagur, nóvember 18, 2003

Má ekki gleyma

má náttúrulega ekki gleyma að segja smá sögu frö föstudagskveldi. Ma´r skrap aðeins út með góð vinkonu sinni henni Miu Martini/Villimey eða eins og ég hef líka kallað hana Asna. Það var haldið á Players í smá Pool, og áttu þetta nú bara að vera nokkrir leikir. Við tókum 2 leiki sem fóru 1-1, ég átti engan heiður af því að vinna annan leikinn, þetta var bara klúður hjá henni ;o) En jæja okey en það voru e-r lúðar búnir að vera að bögga okkur þarna um kvöld, vilja taka leik og soleiðis og ég var búin að vera svo dúlleg að vera bara leiðinleg og segja NEI við þá og var mjög sátt við það.... EEENNN!!! NEI!!!!!!!... Svo missti ég smá af á varð berginu og enn aðrir lúðar koma og byðja okkur að spila og ég ætla að reyna að bjarga málunum og kem hlaupandi og ætla að segja NEI!!!! En Asna var á undan mér að svara og segir JÁ!!!! Komon Asna mín..... Svo voru teknir 3 leikir við þá og hún Asna var daðrari dauðans, rassadillurnar og halla sér yfir poolborðið þannig að þeir sæju nú pottþétt niður skoruna og bladý blada
ASNA þú ert ekki bara hössler í pooli þú ert hössler dauðans á gæjana líka ;o)
Loksins fékk ég svo að fara heim um kl.1, veit ég var leiðinleg við Ösnu og strákana sem voru orðnir gegt spenntir f. henni, en ég var eins og mamma hennar og dró hana heim án þess að þau gætu skipts á númerum :o/

Laugardagskveld

ÉG VAR ÚTILOKUÐ
sko ég ,náttúrulega, fékk mér aðeins í litlu tánna á laugardaginn, og fór á svona smá pöbbarölt.
Og Þegar ma´r er komin í smá tá, þá fer ma´r að hringja og ég hringdi og hringdi í djúsí hópinn minn en viti menn Þau voru ÖLL með slökkt á símanum sínum :o( Minns fór bara næstum að gráta á staðnum!!! Og varð enn og aftur að reiða sig á fótógraferinn, hihi og mann tókst að vekja hann, eins og það er nú skemmtó að vekja fólk þegar maður er á djamminu ;o)
En jæja ég fór sem sé á pöbbarölt og við byrjuðum frekar ofarlega, og ég komst að því að bjórinn er ódýrari eftir því sem maður er ofar á Laugarveginum( jájá, en ég hef aldrei farið ofar en Vegamót) og það er líka allt öðruvísi fólk. Til dæmis á Vegas, okey það er alltaf verið að tala um e-a fordóma gagnvart innflytjendum... sko það var ekkert smá glápt á okkur þarna á Vegas, fengum sko að finna það að við ættum ekki heima þarna og eins og við værum með e-n bráð smytandi sjúkdóm. Og Ó my god!!!tólistinn sem var spiluð þarna... Þetta voru vinsælustu lögin jájá, en það var búið að syngja þau yfir á allt annað tungumál... t.d Kyle á rússnensku!!! Það var hörmung!!!! Eftir þessa hremmingar ákvaðum við að fara bara beint á okkar vanlegustaði, Vegamót, Hverfis og svo kíktum við á Sólon áður en lagt var í hann heim.
Svo á heimleiðinni var gerð svona loka tilraun til að ath hvort e-r djúsí vildi nú tala við mig. Mér til mikillar ánægju þá svarar Bimmi í síman sinn( takk!!), en því miður þá var ég ekki að vekja hann eins og mér finnst nú gaman að vekja kauða ;o) Reyndar talaði ég lítið við hann :o/ lét bara vinkonu mína um það. Bimmi er soddans Herramaður, hann náttúrlega því það var svo kalt úti og svoleiðis að þá bauð hann okkur vinkonunum, sem voru orðnar þreyttar og kaldar, að koma heim til hans og undir sæng með honum ;o) En þar sem við vorum svo fullar tókum við ekki eftir þessu boði fyrr en daginn eftir ;o) ÚBBS!!!

miðvikudagur, nóvember 12, 2003

Við förum ekkert nánar út í það sem ég fékk út úr þessu :o/ Takið þetta bara og segið mér hvað þið fáið út hehehe



What kind of porno would you star in?
brought to you by Quizilla

mánudagur, nóvember 10, 2003

Ég viss það að ég væri kröfuhörð en kannski ekki svona :o/
Prince Charming is your Prince Charming.. only
exists in fairy tales. No one is that perfect,
get a life!


Who is your Prince Charming?
brought to you by Quizilla
jájá mar ekki duglegur að blogga eftir helgina. Þetta var alveg brill helgi, tekið á því, báðir dagar teknir hjá okkur KFC, enda erum við hörku djammarar ;o) Þetta var síðasta djamm fyrir próf hjá manni.

Föstudagurinn var góður hjá okkur djúsí, Bimmi hösllaði 3 gellur og fékk 3 númer, J´Lo var tekin upp í af löggunni og skilað heim (kannski vegna ofölvunnar) Það voru bara ég og KFC sem vorum stilltust, eða ég held það... Ég vil nú þakka einum bekkjarbróður mínum innilega f. heiðarlega tilraun til að bjarga á mér fótunum, þar sem maður var búin að dansa eins og bavíani allt kvöldið og fór í pinna hæla bara f. J´Lo þá var ég búin í fótum, og þessi æði bekkjarbróðir skiptium skó við mig!!!!!!!!!!! það var bara fyndið þegar hann var svo að hoppa í mínum pinnahælum ;o)
Ég byð ykkur að muna það með mér að gera ekki eins og J´Lo vill næst. Svo þegar komið var heim þá steinrotaðist ég upp í rúmi í öllum fötunum :o/ ekki sneddy.

Laugardagurinn var líka góður, en þá fór ég án elsku Djúsi minna :o(
Þá var ég í útskrift hjá elsku vinkonu minni og var þar allez fljótandi í áfengi ;o) En ma´r var frekar róleg, helstu umræðuefnin þarna voru Gæding og Bold and the bjútífúl.
Svo var lagt í bæinn og þá byrjaði Hilla Pilla að mats meika eins og er henni einni lagið þegar hún er komin í glas, það er eins og hún haldi að það sé tilgangur hennar í lífinu að koma mér út :o/... og hún alveg tryltist þegar hún sá mig vera að tala við e-n annan en hún vildi að ég væri með, alveg ótrúleg

þriðjudagur, nóvember 04, 2003

Jæja þá er maður loksins komin heim, og hefur íslenskastafi ;o). Djöfull var erfitt að vakna í morgun, ég var hreint að drepast, en Tóti minn ertu bara að þakka f. spíran, þú baðst um meira en spíran!!!! manstu það ekki??!!!

Hér kemur stutt ferðasaga:
Föstudag vöknuðum við eldeldeldeldeldeldeldeldeldeldeld snemma og fórum af stað í búðir, við byrjuðum í farmacíinu til að kaupa lyf, því þau eru helmingi ódýrari þar en hér. Svo var farið í stórt moll sem heitir La maginista og vorum þar til svona um 3, þá var farið í metroið og tekin Linea 1 niður í bæ. Og þar löbbuðum við og löbbuðum, en ótrúlegt en satt þá keypti ég ekkert, um klukkan 6 gat ég varla meira, mér var orðið svo illt í fótunum og komin með hælsæri á báðar þannig að ég VARÐ að kaupa mér nýja skó :o/ Ekki sniðugt því að svo fór ég beint í þá og ekki lagaðist sárið. Svo var farið heim að leggja sig í svona klukkutíma áður en við færum út að borða. Við fórum svo út að borða á Hard Rock kaffi því það var svona Halloween þarna úti og þá var auðvitað mesta fjörið á Hard Rock, þar var fullt af fólki í búning og þar af var staffið í flottustu búningunum. Það var náttúrulega mikið fjör þarna og staffið var alltaf að taka dans upp á barborðinu.
Svo hittum við liðið Ruben og Armando, Ruben er þessi týbíski spænski cavalier og Armando er svona krafta karl, risastór og gat ekki labbað út af því hvað hann er með stóra kálfa og læri og við vorum að reyna að labba niður Römbluna sem er svona álíka löng og Laugavegurinn og hann þurfti að stoppa svona 3-4 eða kaupa sér e-ð að éta, eldsneyti. En þó hann hafi farið í taugarnar á mér þá var ágæt að hafa hann, því það þorði enginn að bögga mann þegar hann var nálægt, til dæmis urraði hann á 2 gaura sem voru e-ð að flauta á eftir mér ;o) Hélt sig svo við mig restina af göngunni(sagði að það væri sko ekki hægt að láta mig ganga svona eina á undan)

Það var helvíti mikið fjör þarna úti. Það var vel tekið á því á laugardagskveldinu, og djammað soldið frameftir. Við byrjuðum á að fara út af borða á rosa fínum sjávarréttastað og þar prófaði maður allan andskotan, krabba og ostrur og margt fleira. Við Guðbjörg drukkum frekar mikið þarna á staðnum og vorum farnar að syngja Nínu með Sálinni fyrir fólkið á staðnum :o/ Svo var stefnan tekin á dansiball. Ég og ferðafélagi minn vorum nú ekki alveg að meika tónlistina á skemmtistaðnum fyrst en svo fór hún að fara í okkar átt, og við áttum dansgólfið, spánverjarnir rétt svo dilluðu sér en við vorum um allt gólf og fengum þó nokkra athygli vegna þessa ;o) Þegar við komum heim, var ég svo þreytt að ég steinrotaðist.

Svo vaknaði maður aftur snemma til að reyna að pakka niður og auðvitað komst þetta ekki í töskuna sem maður kom með út og varð rosa vesen að reyna að redda því og enduðum við með 5 töskur :o/ ÚBBS!!! Vorum skíthræddar um að við værum með yfirvigt, en sem betur fer þá voru þetta bara 40 kg en ekki meira ;o)

Jæja það er komið nóg af ferða sögunni og setjum bara punkt hér.